Virkilega falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi við Vallarbarð 14 í Hafnarfirði.
Stór lóð með sólpalli er fyrir framan íbúðina og tilheyrir henni ásamt sér bílastæði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 55,0 fm og sér geymsla á hæðinni 8,1 fm, samtals 63,1 fm skv. Fasteignaskrá.Nánari lýsing: Forstofa rúmgóð með skáp og skóhillu.
Eldhús og stofa í björtu alrými.
Eldhús með hvítri og rúmgóðri innréttingu er hvít með steyptum bekkjum, ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél ( uppþvottavél fylgir) borðkrókur undir glugga.
Svefnherbergi með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergið er með flísalagðri sturtu m/glervegg og innfelldum blöndunartækjum, opnanlegur gluggi, hvít innrétting og skápur, upphengt salerni, stæði fyrir þvottavél.
Sér geymsla með hillum á hæðinni fylgir íbúðinni, gengið inn í hana við hliðina á inngangi íbúðarinnar.
Stór og góður
sólpallur með skjólveggjum
Sér
bílastæði fylgir eigninni skv eignaskiptayfirlýsingu.
*Gólfefni íbúðarinnar er harðparket og flísar.
*Hluti íbúðar málaður að utan sumar 2022.
Falleg og mikið endurnýjuð íbúð með sérinngangi á þessum vinsæla og rótgróna stað í Hafnarfirði
þar sem stutt er í helstu þjónustu, skóla, strætó, tengibraut og miðbæ Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is