Opið hús: 08. október 2024 kl. 16:30 til 17:00.OPIÐ HÚS þriðjudaginn 8. október frá kl. 16.30 - 17.00 við Trönuhjalla 7 , íbúð 302 í Kópavogi, allir velkomnir. Svala Haraldsdóttir lgfs verður á staðnum, vinsamlegast boðið komu ykkar í tölvupósti á
[email protected].
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja útsýnisíbúð með bílskúr á þessum frábæra stað við Trönuhjalla 7 í Kópavogi.
Eignin skiptist þannig að íbúðin er 64,4 fm og bílskúr er 28 fm, alls 92,4 skv. Fasteignaskrá.Eignin er laus við kaupsamning!Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskápur.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Eldhús með ljósri innréttingu,flísum á gólfi og stæði fyrir ísskáp. Litið helluborð (ekki ofn). Útgengt úr eldhúsi á stórar suðursvalir með frábæru útsýni.
Svefnherbergið er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergið með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla á jarðhæð sem er um 5 fm með opnanlegum glugga, hillur og málað gólf.
Sameiginleg hjólageymla á jarðhæð og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.
Bílskúr með rafmagnsopnara, göngudyr, heitt og kalt vatn og gluggi.
*Þak var endurnýjað sumarið 2022.
*Nýleg teppi á stigagangi, sameign snyrtilegt.
*3 nýjir ofnar í íbúðinni.
*Íbúðin nýmáluð.
*Nýlegt gler í íbúð ( 2018)
Falleg og vel staðsett eign á þessum vinsæla stað í Kópavogi þar sem stutt er í verslun, skóla, leikskóla og alla almenna þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is