Stekkjarhvammur 32, 220 Hafnarfjörður
132.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á pöllum
9 herb.
243 m2
132.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1984
Brunabótamat
102.020.000
Fasteignamat
120.500.000

Vandað, fallegt og  töluvert endurnýjað raðhús með bílskúr á rólegum stað við Stekkjarhvamm 32 í Hafnarfirði.
Húsið er 243 fm að stærð sem skiptist þannig að neðri hæðin er 91,7 fm, miðhæðin 92,2 fm, risið 35,7 fm og bílskúrinn 23,4 fm, samtals 243,0 fm skv. Fasteignaskrá.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa er flísalögð  sem opnast inní önnur rými á hæðinni
Gestasalerni með opnanlegum glugga, nýjum vaskaskáp og upphengt salerni.
Stofa, borðstofa og sólskáli flæða saman í bjart og skemmtilegt rými, útgengt út á stóra verönd með góðum skjólveggjum.
Sólstofa með rennihurðum, útgengt út sólstofu út á verönd.
Eldhús með sérsmíðaðri innrétting sem er  hvít sprautulökkuð og viður í bland, með svörtum granít á borðum. Stæði fyrir tvöfaldan ísskáp.
Stór gluggi og flísar á gólfum.
Þvottahús er innaf eldhúsi, rúmgott með hurð út. Mjög mikið skápapláss, sérsmíðaðar innréttingar, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með tauskúffum undir.
Gott rými í enda þvottahúss sem núna er nýtt sem aukaeldhús.
Fallegur stigi með gegnheilu parketi og stálhandriði tengir saman hæðirnar.
 
Efri hæð
Hjónaherbergi
með sérsmíðuðum fataskápum, mikil lofthæð.
Fataherbergi með parketi á gólfi og hilluvegg.
Fjögur svefnherberg með parketi á gólfi,
Eitt af herbergjunum var sjónvarpshol en lítið mál að breyta aftur.
Baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, baðkar, flísalagður sturtuklefi og handklæðaofn.


Ris er stórt opið rými sem nýtist vel sem fjölskyldurými/skrifstofa/herbergi með þakgluggum sem veita góðri birtu inn í rýmið.
Gott lokað geymslurými undir súð.

Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan votrými og eldhús sem er flísalagt. Nýbúið er að pússa parketið á jarðhæðinni.

Bílskúr: rafmagnsopnari, innrétting og hillur í enda bílskúrs með góðri vinnuaðstöðu. Tengibox og tvær hleðslustöðvar tengdar í bílskúr. Nýlega skipt um allt rafmagn. Kalt vatn.

Geymsluskúr á lóð 6,5 fm.

* Ný klæðning sett utan á húsið 2022.
* Þakjárn og pappi endurnýjað 2022, einnig skipt um það timbur sem þurfti.
* Þakrennur endurnýjaðar 2022.
* Nýlegir Velux risgluggar, einn með rafdrifnum opnara með rakaskynjara. Allir gluggar í risi með myrkvunargluggatjöldum.
* Tölvustýrðir ofnar, stýring frá Danfoss.
* Ekkert starfandi húsfélag er í raðhúsalengjunni. 
* Hiti í stétt fyrir framan hús.


Falleg aðkoma er að húsinu. Hellulagður garður, bílskúr er neðan við húsið.  Virkilega skemmtilegt fjölskylduvæn eign á þessum frábæra stað í hvömmunum í Hafnarfirði

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.