Opið hús: 07. október 2024 kl. 16:30 til 17:00.OPIÐ HÚS mánudaginn 7. október frá kl. 16.30 - 17.00 við Skipalón 12, íbúð 104 í Hafnarfirði, allir velkomnir. Svala Haraldsdóttir lgfs verður á staðnum, vinsamlegast boðið komu ykkar í tölvupósti á
[email protected].
Virkilega falleg 127,8 fm 4ra herbergja íbúð á jarðhæð merkt 0104 í Skipalóni 12 fyrir 50 ára og eldri, ásamt stæði í bílageymslu merkt B35.
Hellulögð suð/vestur verönd, tvö baðherbergi. Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 120,7 fm og sér geymsla á hæðinni er 7,1 fm, samtals 127,8 fm skv. Fasteignaskrá.Nánari lýsing:Forstofa með góðum skápum og parketi á gólfi.
Eldhús og stofa í björtu alrými með útgengt út á suðvestur verönd.
Eldhúsið er með viðarinnréttingu en efri skápar hvítir, helluborð, vifta, ofn í vinnuhæð og flísar á milli skápa. Eldhúseyja með góðu geymsluplássi.
Herbergi 1 hjónasvíta með skápum upp í loft, baðherbergi inn af hjónaherbergi.
Herbergi 2 & 3 með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi 1 er innaf forstofu og er með viðarinnréttingu, sturtu, veggsalerni og flísum á gólfi og veggjum.
Baðherbergi 2 er innaf hjónaherbergi og er með viðarinnréttingu, baðkari, veggsalerni og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottahús er innaf baðherbergi 1, flísar á gólfi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, bekkur, hillur og vaskur.
Gólfefni íbúðarinnar eru parket nema á votrýmum eru flísar.
Sér
geymsla er á sömu hæð og íbúðin.
Sérstæði í bílageymslu í kjallara.
Snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu.
Aðgangur að veislusal sem húsfélagið á. Salur fyrir um 50 manns.
Virkilega falleg og vönduð eign sem vert er að skoða!
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is