Falleg, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð við Álfaskeið 29 á í Hafnarfirði
Eignin skiptist þannig að íbúðin á 1. hæð er 61 fm og geymslur í kjallara eru 30,4 fm, alls 91,4 fm.
Íbúðin er laus við kaupsamning!Nánari lýsing: 1.hæð, 3ja herbergja íbúð 61 fm:Tvö rúmgóð
svefnherbergi með skápum og parketi á gólfi.
Eldhús með ljósri innréttingu og borðkrók. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Baðherbergi með sturtu, vaskur með lítilli innréttingu, flísar á veggjum og gólfi. Gluggi á baðinu.
Stofa björt með stórum gluggum, harðparket á gólfum
Geymsla í kjallara.
Harðparket á gólfum frá Birgisson en flísar á baðherbergi og á forstofu.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Mjög góður suðurgarður fyrir framan hús og skjólsæll bakgarður (engar svalir á íbúð)
Geymslurými í kjallara ( gluggalaust) með góðri lofthæð (er í Álfaskeiði 27), 30,4 fm:Framkvæmdir seinustu ára:*Stigagangur málaður og teppalagður 2019
*Þak algjörlega endurnýjað árið 2019 (allt tréverk, pappi, þakjárn, túður á þaki), nýjar þakrennur, nýr blikk kantur meðfram öllu.
*Gler, gluggar og útihurðar 2019
*Skólp endurnýjað fyrir Álfaskeið 29.
*Rafmagn í kjallara endurnýjað að hluta í kjallara
*Vatnsleiðslur á 1. hæð endurnýjað að hluta 2014.
*Umfangsmikil múrviðgerð 2019
*Húsið málað 2019.
* Framkvæmdir unnar af fagmönnum.
*Geymslurými í kjallara er gluggalaust og því ekki hæft til búsetu.
Eignin er laus 2. júlí 2024.
Vel staðsett og falleg eign á þessum vinsæla stað í Hafnarfirði þar sem stuttt er í alla helstu þjónustu og tengibrauti.
Fallegt og grasi gróið svæði í kringum húsið þar sem næstu hús eru í góðri fjarlægð og því gott næði.Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is