122,0 fm 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og sér verönd í fjórbýli við Drekavelli 46 í Hafnarfirði.
Allir uppgefnir fermetrar eru innan eignarinnar skv. Þjóðskrá Íslands, þ.m.t. geymsla.
Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Rúmgóð geymsla er innaf forstofu en einnig er sérinngangur í hana að utan. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni (þ.m.t. hjóna), skápar í öllum. Baðherbergi með baðkari og sturtu, veggsalerni, viðarinnrétting, flísar á gólfi og veggjum. Þvottahús er innan íbúðarinnar. Stofa, borðstofa og eldhús í björtu alrými, útg. á sér verönd sem er lokuð af með skjólveggjum. Eldhúsið er með nýlegri hvítri innréttingu, ofn, helluborð með innbyggðri viftu (nýleg tæki).
Gólfefni íbúðarinnar er p.parket og flísar. Nýjar flísar eru á gangi/forstofu, geymslu og þvottahúsi.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði. Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is