Glæsilegar nýjar íbúðir með stæði í bílageymslu við Gæfutjörn 4 í Úlfarsárdal, Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í falleg útivistarsvæði. Íbúðirnar eru ýmist 2ja til 4ra herbergja og skilast fullbúnar að innan, án megin gólfefna. Svalir og/eða pallur með öllum íbúðum ásamt geymslu ásamt stæði í bílageymslu. Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.