Opið hús: 02. október 2024 kl. 16:30 til 17:00.OPIÐ HÚS miðvikudaginn 2. okt. við Skipalón 26 í H.f., allir velkomnir. Eiríkur Svanur Sigfússon lgf. verður á staðnum. Ekki verður hægt að skoða íbúðina fyrr en í opnu húsi
Fyrir 50 ára og eldri
ATH. ekki verður boðið upp á sýningar fyrir opið hús
166,4 fm einstaklega falleg 3ja til 4ra herbergja enda-íbúð á 4. hæð með tveimur bílastæðum í bílakjallara og flottu útsýni við Skipalón 14, 220 Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 157,8 fm og geymsla í kjallara 8,6 fm, samtals 166,4 fm en einnig eru tvö bílastæði í lokaðari bílageymslu sem fylgja eigninni. .Nánari lýsing: Forstofa með góðu skápaplássi. Hol, þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi og sér baðherbergi m/baðkari, sturtuklefa, vegghengdu salerni, handklæðaofni, speglaskápum og innréttingu. . Þvottahús með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vaski og vel skipulagðri innréttingu. Gestasalerni með sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Björt og rúmgæoð stofa og borðstofai með útg. á tvennar svalir, aðrar til norðurs og hinar til suð-vesturs, aðrar svalirnar eru yfirbyggðar, gasarinn, frábært útsýni. Eldhús er opið í stofuna með vel skipulagðri innréttingu, eyju með helluborði og viftu yfir, borðkrókur fyrir framan eyju, tækjaskápur, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél, gluggi á milli skápa. Geymsla og tvö bílastæði í kjallara. Gólfefni eru flísar og parket.
Íbúðin er til enda í húsinu og er því með glugga í þrjár áttir, björt og með góðu útsýni yfir hafnarsvæðið.
Hefðbundin hjóla- og vagnageymsla er til staðar en einnig hafa íbúar afnotarétt af 55 fm samkomusal í húsinu.
Sameiginleg þvottaaðstaða er í bílageymslu.
Frábær staðsetning á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / [email protected] og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is