Opið hús: 02. október 2024 kl. 18:00 til 18:30.OPIÐ HÚS miðvikudaginn 2. október frá kl. 18.00 - 18.30 við Hringbraut 59, íbúð 201 í Reykjanesbæ, allir velkomnir. Svala Haraldsdóttir lgfs verður á staðnum, vinsamlegast boðið komu ykkar í tölvupósti á
[email protected].
Virkilega falleg 71,1 fm 3ja herbergja risíbúð við Hringbraut 59 í Reykjanesbæ.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 65,2 fm og sér geymsla á jarðhæð 5,9 fm, samtals 71,1 fm skv. Fasteignaskrá. Íbúðin er stærri í raun þar sem hluti fermetra er undir súð.Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp.
Stofa og borðstofa í alrými með útgengt á svalir.
Eldhús með hvítri innréttingu, eyja með helluborði, ofn og háf yfir. Þar er helluborð, stál háfur, uppþvottavél og ísskápur.
Tvö svefnherbergi, skápar í öðru.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til, hvít innrétting, veggsalerni og baðkar.
Gólfefni er harðparket nema baðherbergið er flísalagt.
Á jarðhæð er
sameiginlegt þvottahús. Einnig fylgir eigninni
sér geymsla með aðgengi utanfrá.
Nýir rafmagnstenglar og rofar.
Nýtt járn á þaki.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is