Vinastræti 8, 210 Garðabær
99.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
128 m2
99.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2019
Brunabótamat
76.550.000
Fasteignamat
90.850.000
Opið hús: 01. október 2024 kl. 16:30 til 17:00.

OPIÐ HÚS við Vinastræti 8 íbúð merkt 205 í Urriðaholti/Garðbæ þriðjudaginn 1. október kl. 16.30 - 17.00. Allir velkomnir, Eiríkur Svanur Sigfússon lgf. verður á staðnum.

Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð í góðu fjölbýli með lyftu á annari hæð ásamt sér stæði í bílageymslu á þessum frábærum stað við Urriðaholt í Garðabæ.   Fallegt útsýni er úr íbúðinni, öll rými rúmgóð, tvennar svalir (austur og vestur).  Eignin er alls 128,1 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 115,4 fm og sér geymsla á jarðhæð/kjallara 12.7 fm.

Forstofa með h.parket á gólfi og skápum.  Hol/gangur með h.parket á gólfi.  Stofan er með h.parket á gólfi, útg. út á rúmgóðar vestur svalir.   Eldhúsið er opið í stofuna, ljós innrétting, h.parket á gólfi, flísaplata á milli skápa, háfur, helluborð, ofn í vinnuhæð, stæði f. uppþv.vél.  Þrjú stór herbergi með h.parket á gólfi og góðum skápum, útg. úr hjónaherberginu út á austur svalir.  Baðherbergið er með flísum á gólfi og á vegg að hluta, innrétting, sturta.  Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting. 
Sér geymla á jarðhæð, sér stæði í bílageymslu, tenging er fyrir bílahleðslustöð í stæðinu,  hefðbundin hjóla- og vagnageymsla. Fasteignamat 2025 verður kr. 97.550.000. Snyrtileg sameign, hús að utan og sameign lítur vel út.  Þ.G. verktakar byggðu húsið á sínum tíma, byggingaár hússins er skráð hjá HMS 2019.  Utanhúsklæðing  er á húsinu og má því búast við viðhald verði í minna lagi í framtíðinni.
Stutt í margskonar þjónustu þ.m.t. grunn- og leiksskóla.  Góð leiksvæði eru við nágrenni við húsið vegna nálægðar við skólan í hverfinu.  Einnig er stutt á golfvöll, Urriðagolfvöllur þar sem golfklúbburinn Oddur er.  Svo er útivistarparadísin Heiðmörk  í næsta nágrenni við eignina.  

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / [email protected] og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.