Byggðarhorn 19, 801 Selfoss
239.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
2 herb.
381 m2
239.800.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
137.750.000
Fasteignamat
216.700.000

Byggðarhorn 19, sjarmerandi sveitasetur sem býður uppá mikla möguleika, en alls eru fimm hús á jörðinni( fjórar fullbúnar íbúðir). Samanlögð stærð húsanna er 381,7 fm (inní þeirri fernetratölu er ekki  lítið gestahús né glerskálarnir) um er að ræða mjög fjölbreyttan húsakost með möguleika á t.d góðum leigutekjum. Húsin standa á tæplega 4 hektara búgarðajörð (möguleiki að kaupa lóðina við hliðiná hún er skráð 3,6 hektarar), heimilt að byggja 1000fm af húsakosti, því nægt byggingarmagn eftir, einstök staðfesting með fallegu útsýnis steinsnar frá Selfossi ( 5 mínútna keyrsla ), lóðin er einstaklega vel staðsett innst inní enda hverfisins.

Húsin skiptast á eftirfarandi hátt:

Hús 1: Alrými sem saman stendur af stofu og eldhúsi, svefnherbergi með rennihurð sem er samtengt við fallegt baðherbergi með walk-in sturtu. Fyrir frama húsið er pallur með yfirbyggðum glerskála. Glerskálinn er samtengdur við hús 2. Vestanmegin við húsið er svo glæsilegur pallur og garður, með heitum potti inni í fallegum útiskála sem snýr afar vel gagnvart sólu og skapar því mikla veðursæld þar sem pallurinn er afgirtur með skjólveggjum beggja megin. 
Hús 2: Snoturt gestahús með svefnherbergi og baðherbergi, ásamt stórum og björtum gluggum. 
Hús 3: Gengið er inn um anddyri og þar er baðherbergi með sturtu. Þegar úr anddyri er komið tekur við svefnherbergi, og fataherbergi með góðu skáparými. Alrýmið samanstendur af borðstofu og eldhúsi með stórum og björtum gluggum sem þekja norðurgafl hússins. Út borðstofunni er gengið upp afar fallegan og vandaðan stiga upp á svefnloft hússins en þar er svefnaðstaða og setustofa. 
Hús 4: Gengið er inn í alrýmið sem samanstendur af setustofu og eldhúsi. Í húsinu eru tvö svefnherbergi ásamt rúmgóðu baðherbergi. Pallur er fyrir framan húsið einnig með yfirbyggðum glerskála. 
Hús 5: Húsið er 203,8 fm fjölnota hús, helmingur hússins er fallega innréttuð íbúð, inn af anddyri hússins er baðherbergi. Úr anddyrir tekur við gangur sem er afar snyrtilega innréttaður sem þvottahús, með háum innréttingum og þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gengt þvottaaðstöðunni er rúmgott svefnherbergi. Alrýmið er hátt til lofts og bjart en þar er eldhús með eyju ásamt borðstofu og sjónvarpsstofu. Út frá alrýminu er annað svefnherbergi hússins. Úr borðstofunni er útgengt út á yfirbyggðan pall með setustofu og heitum potti. Pallurinn snýr vel gagnvart sólu. 
Hinn helmingur hússins skiptist í tvö bil með sitthvorri innkeyrslu hurðinni, Innangengt er á milli bilanna.

Aðkoma að húsunum er sérstaklega glæsileg en mikið hefur verið lagt í allann frágang þar með talið við gróðursetningu, palla, garðskála svo einhvað sé nefnt. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson, löggiltur fasteignasali, s.655-7000 eða [email protected]


Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.