102,5 fm nýlegt atvinnuhúsnæði við Lónsbraut 54 (rauða húsið), 220 Hafnarfirði.
Eignin skiptist 71,4 fm neðri hæð og 31,1 fm efri hæð, samtals 102,5 fm skv. HMS.
Nánari lýsing:Neðri hæð: Skiptist í ca. 35 fm vinnuaðstöðu með góðu skápaplássi, vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, epoxy á golfi. Hol, herbergi ásamt walk-in fatahengi innaf holi með h.parketi á gólfi, baðherbergi með sturtuklefa og epoxy á gólfi. Stigi á efri hæð.
Efri hæð: Góð setu- og borðstofa með nýlegri hvítri háglans eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi, ofn, helluborð með viftu yfir. Annað rúmgott herbergi innaf stofu, h.parket. á gólfi.
Húsið var byggt árið 2019 skv. HMS og skv. seljanda var m.a. húsið klætt með brúnum krossvið undir báruklæðningu.
Fyrir aftan hús er bátalyfta með spili sem eigandi hússins hefur afnot af.
Seljandi skoðar einnig tilboð með bátnum sem liggur fyrir framan hús.
Nánari upplýsinga og bókun í skoðun veita Arnór Daði Eiríksson, aðstoðarm. fs. í s. 777-0939 / [email protected] og Eiríkur Svanur Sigfússon lg.fs. í s. 862-3377 / [email protected]
Frábær staðsetning í Hvaleyrinni, Hafnarfirði þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is