Silungakvísl 2, 110 Reykjavík (Árbær)
168.900.000 Kr.
Einbýli
9 herb.
280 m2
168.900.000
Stofur
4
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1983
Brunabótamat
132.450.000
Fasteignamat
163.050.000

Glæsilegt 280,2 fm einbýli á tveimur hæðum ásamt bílskúr og rótgróinni verönd á eftirsóttum stað við Silungakvísl 2, 110 Reykjavík.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 237,7 fm og bílskúrinn 42,5 fm, samtals 280,2 skv. HMS.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Rúmgóð forstofa með gestasalerni og hringstiga upp á efri hæð. Björt borðstofa og sólstofa með tvo útganga á verönd í andstæðar áttir. Stór og mikil stofa sem í dag skiptist í setustofu, borðstofu og sjónvarpstofu með tvöföldum útg. á verönd, arinnstæði og gólfsíðum gardínum. Eldhús með tímalausri viðarinnréttingu, hvítri borðplötu, nýlegum háfi, dökkar flísar á milli skápa, vínrekka við efri skápa, miklu skápaplássi og borðkróki. Svefnherbergi innaf eldhúsi. Þvottahús og geymsla með útg. að framan- og aftanverðu ásamt auka-anddyri sem samtengist bílskúr.
Efrihæð: Huggulegt fjölskyldurými með arinnstæði. Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergi með sturtu, baðkari og handklæðaofn. Mikil lofthæð, hvítmálaðir burðabitar og viðarpanil klæðning í lofti.
Bílskúr: Skiptist í bílageymslu, geymslu og rúmgott og bjart svefnherbergi, bílskúrshurð og gönguhurð í bílskúr.

Alls eru fimm svefnherbergi og 4 stofur í húsinu sem er skemmtilega skipulagt með mikilli lofthæð.

Gólfefni hússins eru flísar og parket. Sérsaumaðar gardínur frá Z-brautum fylgja. 

Frábær og eftirsótt staðsetning í höfuðborginni þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson lgfs. 772-7376 / [email protected].

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.