Erluás 48, 221 Hafnarfjörður
199.000.000 Kr.
Einbýli
8 herb.
317 m2
199.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
134.100.000
Fasteignamat
176.250.000

Fallegt einbýlishús á tveim hæðum á góðum útsýnisstað í Áslandinu, staðsett innst í botnlanga. Húsið er skráð hjá FMR alls 317.9 fm sem skiptist þannig að efri hæðin er 184.2 fm, neðri hæð 91.8 fm og bílskúr er 41.9 fm.
 
Efri hæð: Forstofa með flísum og skáp. Hol með flísum. Gestasnyrting með veggsalerni og flísum á gólfi. Eldhús með góðri innréttingu, gashelluborði, ofni, háf, stæði fyrir uppþvottavél í vinnuhæð og flísum á gólfi. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu. Innangengt er í tvöfaldan bílskúr frá þvottahúsi, rafm, hiti, vatn og hurðaopnari. Sjónvarpsherbergi með flísum. Stofa og borðstofa með parketi, gengið út á stórar svalir og þaðan er hægt að fara niður á verönd sem er ca. 140 fm. Herbergisgangur/tölvuhorn er með parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi með plast parketi á gólfi, skápar í hjónaherbergi. Svalir við enda gangs. Baðherbergi með innréttingu, sturtu og baðkari, flísum á veggjum og gólfi. 
Neðri hæð: Parketlagður stigi og gangur með flísum og sérsmíðuðum skápum. Útgengt út á verönd. Tvö rúmgóð herbergi með plast parketi á gólfi, annað er með stórum skáp og geymsla inn af því herbergi. Baðherbergi með flísalögðum sturtuklefa, flísum á gólfi og innréttingu.
Stór geymsla með hita og bílskúrshurð er á neðri hæð, gengið inn að aftan. 
Háaloft: nýtist sem geymsla.
 
Gólfhiti er á allri neðri hæðinni. Á efri hæðinni er gólfhiti á baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi og bílskúr. Lóð er fullbúin með góðri verönd, heitum potti, bílaplan hellulagt með hita.

Allar nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í síma 862-3377 / [email protected] og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
 

 
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.