Glæsileg 98,7 fm 3ja herbergja íbúð á 4. hæð við Skipalón 25 í Hafnarfirði. Eigninni fylgir sér stæði í lokaðri bílageymslu.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 91,4 fm og sér geymsla í kjallara 7,3 fm, samtals 98,7 fm skv. HMS.Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Eldhús og stofa í björtu alrými með útg. á svalir. Eldhúsið er með viðarinnréttingu, steinn á borði, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, helluborð með viftu yfir. Tvö svefnherbergi, skápar í báðum. Baðherbergi með viðarinnréttingu, baðkar með sturtu yfir, handklæðaofn. Þvottahús er sér innan íbúðar. Gólfefni íbúðarinnar er harðparket nema votrými eru flísalögð.
Sér geymsla í kjallara og sér stæði í bílageymslu.
Snyrtileg sameign með hjóla- og vagnageymslu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is