Hellisgata 5, 220 Hafnarfjörður
91.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
3 herb.
99 m2
91.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1930
Brunabótamat
44.500.000
Fasteignamat
64.250.000

Hellisgata 5, mikið endurnýjað einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar. Húsið er skráð 99 fm að stærð með möguleika á stækkun,
mikið var tekið í gegn af fyrr eigendum þ.m.t allar innréttingar, gólfefni, bæði baðherbergin, eldhúsið, og gólfhiti settur í báðar hæðir.
Vatnslagnir og rafmagnslagnir voru jafnframt teknar í gegn og húsið steinað að utan árið 2006 samkvæmt fyrrum eigendum.
Nýlega voru settar nýjar rennur og snjóstopparar á þakið.


Nánari lýsing:
Flísalögð forstofa með góðum forstofuskáp, gengið er inn í bjart alrými sem saman stendur af stofu, borðstofu og eldhúsi,
útgengt er úr stofunni út á góðan pall með markísu sem snýr til suðurs. Eldhúsið er hvítt háglans með góðu vinnuplássi, ísskápur og uppþvottavél fylgir,
á efri hæðinni er klósett innaf forstofu hússins en þar er einnig möguleiki að koma fyrir sturtu þar sem allar lagnir eru til staðar.
Gengið er niður stiga á neðri hæð hússins þar er gott hol sem er nýtt í dag sem skrifstofuaðstaða, tvö svefnherbergi,
rúmgott baðherberbergi með baðkari, "walk in" sturtu og afar snyrtilegri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsluloft er yfir eldhúsi hússins og einnig góður geymsluskúr á lóðinni.

Falleg eign sem hefur verið hugsað vel um síðustu ár, flott staðsetning steinsnar frá miðbæ Hafnarfjarðar og Hellisgerði.

Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.