Kinnargata 92, Garðabær
Nánari lýsing

Glæsilegar nýjar 4ra herbergja íbúðir við Kinnargötu 92 í Urriðaholtinu, Garðabæ. Íbúðirnar eru afar vandaðar og standa vel með einstöku útsýni, frábær staðsetning innan hverfisins rétt við golfvöllinn. Svalir íbúðanna snúa einnig vel á móti sólu.
Lyftuhús fallega klætt með tveimur stigagöngum og eru tíu íbúðir í hvorum stigagangi.


- Innréttingar frá VOKE3.
- Eldhústæki: Spanhelluborð með 4 hellum, bakarofn frá AEG veggofn, stál sjálfhreinsandi, combi ofn AEG stál.
- Geymslur fylgja öllum íbúðum.
- Sér stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum og einnig golfbílastæði með nokkrum.
- Lagnaleið fyrir mögulega rafhleðslutengingu er við hvert bílastæði.
- Gólfhiti
- Íbúðirnar skilast fullbúnar án megin gólfefna
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda

Byggingaraðili: Vesturvík ehf.

Húsið er fjölbýlishús upp á fjórar hæðir, auk kjallara, byggt samkvæmt arkitektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt. Húsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt úr járnbentri steypu.
Húsið er einangrað að utan og klætt með áli (læst klæðning). Íbúðirnar eru fullfrágengnar og skilast án gólfefna. Á votrýmum eru flísar á gólfum og veggir flísalagðir að hluta.
Þak er svokallað viðsnúið þak, ábræddur tjörupappi, með vatnsþolinni einangrun. Þakkantur frágenginn samkvæmt teikningum hönnuðar. Gluggarnir eru danskir álklæddir trégluggar frá Rationel.

Lóð sléttuð og tyrfð. Stígar hellulagðir með snjóbræðslu að hluta. Bílastæði eru frágengin skv. teikningu

Skilalýsing
Myndir
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun
Aron Freyr Eiríksson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali / Leigumiðlari
SJÁ NÁNAR
Eiríkur Svanur Sigfússon
Eigandi / Löggiltur fasteignasali / Leigumiðlari
SJÁ NÁNAR
Svala Haraldsdóttir
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Stefán Rafn Sigurmannsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Arnór Daði Eiríksson
Skjalavinnsla
SJÁ NÁNAR