Áshamar 42-48, Hafnarfjörður
Nánari lýsing

Glæsilegar nýjar íbúðir við Áshamar 42-48 í Hamranesi, Hafnarfirði. Frábær staðsetning í Hamranesinu þar sem margar íbúðirnar hafa glæsilegt útsýni. 
Íbúðirnar skilast fullbúnar að utan og innan og sumar íbúðir hafa sér stæði í bílgeymslu.

Áshamar 44 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins. Það þýðir að rík áhersla er lögð á efnisval við byggingu hússins til þess að lágmarka umhverfisáhrif byggingarinnar. Við hönnun hússins eru staðlarnir einnig hafðir að leiðarljósi. Hönnunin miðar meðal annars að því að lágmarka orkunotkun með bættri loftræstingu, hljóðvist og sem hagkvæmastri nýtingu dagsbirtu.

Nánari lýsing:
- Íbúðirnar skilast fullbúnar að innan og utan, með gólfefnum. 
- Gólf eru parketlögð með harðparketi nema votrými íbúða eru flísalögð. 
- Fallegar eldhúsinnréttingar frá Parka ehf
- Vaskur og blöndunartæki frá Tengi ehf
- Tæki í innréttingu eru AEG eða sambærileg frá Ormsson. 
- Allar íbúðir hafa sér geymslu á neðstu hæð. 
- Loftskiptikerfi er innan íbúða.
- Húsið er steypt, einangrað að utan með 120mm steinull og klætt með báruáli. Kringum innganga verður klætt með cembrit klæðningu. 
- Útiflísar verða á svölum íbúða. 
- 60 bíla bílakjallari er undir húsinu. Sér stæði í bílgeymslunni fylgir sumum íbúðum í húsinu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir rafmagnshleðslu í bílastæði.

Húsbyggjandi (Aðalverktaki) er traustur verktaki: Verkland ehf.

Skilalýsing
Sækja skilalýsingu
Myndir
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun
Aron Freyr Eiríksson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali / Leigumiðlari
SJÁ NÁNAR
Eiríkur Svanur Sigfússon
Eigandi / Löggiltur fasteignasali / Leigumiðlari
SJÁ NÁNAR
Svala Haraldsdóttir
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Stefán Rafn Sigurmannsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Arnór Daði Eiríksson
Skjalavinnsla
SJÁ NÁNAR