Áshamar 52, Hafnarfjörður

Húsin við Áshamar 52, sem nú eru komin í sölu, eru þrjár einingar sem tengjast með svalagöngum. Stiga- / lyftuhús er lokuð upphituð eining sem liggur miðlægt og inngangar eru frá aðkomugötu og garði, þannig verða tengsl við garðsvæðið mjög góð. Svalagangar liggja frá stigahúsi meðfram tveimur vestureiningum. Frá þeim eru "brúartengsl" til austurs yfir í hinar tvær húseiningar íbúðaklasans.

Húsin eru staðsteypt, einangruð að utan og klædd með viðhaldsfrírri klæðningu. Húsin eru fjórar hæðir með inndreginni fimmtu hæð að mestu. (L-húsin eru einungis fjórar hæðir). Á 1. - 4. hæð eru 12 íbúðir á hæð og 6 íbúðir á 5. hæð.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

 

  • Íbúðirnar skilast fullbúnar án megingólfefna, votrými verða flísalögð.
  • Hönnuður hússins er Guðni Pálsson (GP Arkitektar ehf.)
  • Sérsmíðaðar innréttingar eru frá Axis.
  • Í eldhúsum er spanhelluborð og bakaraofn frá AEG ásamt eyjuháf.
  • Mögulegt verður að setja rafbílahleðslu við hvert bílastæði á lóð. Þ.e. ídráttarlagnir í lóð verða til staðar.

 

Stærðir: 80,1 - 129,3 fm

Herbergi: 3ja, 4ra og 5

Áætluð afhending: Október 2023

Skilalýsing
Sækja skilalýsingu
Myndir
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun
Aron Freyr Eiríksson
Eigandi / Löggiltur fasteignasali / Leigumiðlari
SJÁ NÁNAR
Eiríkur Svanur Sigfússon
Eigandi / Löggiltur fasteignasali / Leigumiðlari
SJÁ NÁNAR
Svala Haraldsdóttir
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Stefán Rafn Sigurmannsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR