Fossvegur 2, 800 Selfoss
44.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
70 m2
44.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
42.050.000
Fasteignamat
39.900.000

70,8 fm 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í vel staðsettu fjölbýli nálægt miðbænum við Fossveg 2, Selfossi.
Allir fermetrarnir eru innan íbúðar skv. HMS.

Nánari lýsing:

Anddyri með skápum. Innaf anddyri er baðherbergi með nýlegu hornbaðkari og nýlegum sturtuklefa ásamt stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús, stofa og borðstofa í björtu og rúmgóðu alrými með útg. á svalir til vesturs með fallegu útsýni. Eldhús með góðu skápaplássi, ofni í vinnuhæð og helluborði m/viftu yfir. Ca. 5,26 fm geymsla innan íbúðar með loftun sem í dag nýtist sem skrifstofa. Rúmgott hjónaherbergi með skápum og fallegu útsýni.

Gólfefni íbúðarinnar eru parket og flísar.

Skipt var um sturtuklefa fyrr á þessu ári og sett nýtt hornbaðkar ásamt blöndunartækjum árið 2023, í bæði skiptin voru löggiltir fagaðilar sem sáu um verkin að sögn seljanda.
Gott og vel rekið húsfélag í húsinu.
Í fyrra var sett upp nýtt dyrasímakerfi með myndavél í allt húsið.
Lyklalaust aðgengi í sameign.
Búið að setja upp hleðslustöðvar í sameiginleg stæði.
Nóg af bílastæðum, þá einnig fyrir fatlaða.
Hefðbundin hjóla- og vagnageymsla í snyrtilegri sameign.

Frábær staðsetning þar sem alla helstu þjónustu má finna í göngufæri en þar má nefna grunn- og leikskóla, matvöruverslanir, miðbæ Selfossar og margt fleira.

Allar nánari upplýsingar veita Arnór Daði Eiríksson aðstoðarm.fs. í s. 777-0939 / [email protected] og Eiríkur Svanur Sigfússon lg.fs. í s. 862-3377 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.