Falleg og björt þriggja herbergja íbúð á þriðju ( efstu) hæð með stæði í bílakjallara við Flétturima 3 í Grafarvogi.Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 86,7 fm og geymsla 4 fm, alls 90,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent straxNánari lýsing:Forstofa: með flísum á gólfi og góður fataskápur.
Stofa/borðstofa: liggja saman í góðu alrými, parket á gólfi. Þaðan er útgengt út á flísalagðar svalir.
Eldhús: Eldhúsinnréttingin er hvít,stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, helluborð, ofn í vinnuhæð. Flísa á gólfi og milli skápa.
Þvottahús: er inn af eldhúsi með hillum, vask og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö , bæði með hvítum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta. Innrétting með handlaug og upphengt salerni.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er lítið rými sem nýtist sem þvottahús og geymsla. Flísar á gólfi. Hillur á veggjum.
Svalir: Útgengt er á svalir úr stofu og eru þær 7,8 fm en ekki lokaðar.
Geymsla: 4 fm sér geymsla er í kjallara hússins.
Bílageymsla: Stæði í bílahúsi fylgir íbúðinni og er það rými í heildina skráð 28,1 fm en skráist ekki í heildarfermetrafjölda íbúðarinnar. Þvottaaðstaða fyrir bíla er í bílakjallaranum.
Lóð: Lóðin er frágengin og eru malbikuð bílastæði fyrir framan húsið og grasflöt í kringum
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, tónlistaskóla og aðra þjónustu.
Góðir göngustígar í hverfinu, upphitaður stígur í Langarima að Spöng þar sem hina ýmsu þjónustu er að finna.Allar nánari upplýsingar veita:
Svala Haraldsdóttir Löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 & [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is