Opið hús: 18. ágúst 2022 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús fimmtudaginn 18. ágúst milli kl. 17:30 & 18:00 við Hjallabraut 41 í Hafnarfirði - Vinsamlegast boðið komu ykkar til Arons lgfs.:
[email protected]
119,1 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð við Hjallabraut 41 í Hafnarfirði.
Skv. Þjóðskrá Íslands er íbúðin 112,6 fm en skv. eignaskiptayfirlýsingu hússins er hún 113,0 fm. Ennfremur fylgir henni sér geymsla í kjallara sem er 6,1 fm, alls er eignin því 119,1 fm skv. eignaskiptayfirlýsingunni.Nánari lýsing: Forstofa. Eldhús með grárri innréttingu, eldavél með háf yfir. Rúmgott þvottahús með góðri innréttingu er innaf eldhúsinu. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa, útg. á stórar svalir. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, þ.m.t. hjóna. Góðir skápar eru á herbergisganginum. Baðherbergi með grárri innréttingu, veggsalerni, baðkar með sturtu yfir.
Sér geymsla í kjallara og sameign með hjóla- og vagnageymslu.
Gólfefni íbúðarinnar er parket og flísar.
Endurbætur á húsinu að utan undanfarin ár skv. eiganda: - Skipt um þak á öllu húsinu
- Skipt um glugga þar sem metið var að þess þurfti
- Sprunguviðgert
- Verið er að lagfæra stétt og niðurföll
Framkvæmdir sem eru hafnar:- Áætlað er að klæða húsið að utan að stórum hluta á næstu 2-3 árum og eru þær framkvæmdir hafnar.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is