58,7 fm sumarhús á fallega gróinni 5.000 fm leigulóð við Hólmasund 3 í Hraunborgum, Grímsnesi.
Eignin skiptist þannig að húsið sjálft er 49,6 fm og geymsluskúr 9,1 fm, samtals 58,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Húsið skiptist í: Anddyri. Stofa og eldhús í alrými með útg. á rúmgóðan sólpall. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu. Baðherbergi með sturtu. Skápar í öllum herbergjum og forstofu.
Geymsluskúr er á lóðinni, mögulegt að breyta í gestahús ef vill.
Á svæðinu er þjónustumiðstöð, golfvöllur, minigolf, sundlaug, vinsæll bar (Þorparinn) o.fl. Stutt er í golfvöllinn við Kiðjaberg, í sundlaug á Minniborgum og ferðamannaperlur á Gullna hringnum o.fl.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is