OPIÐ HÚS fimmtudaginn 30. júni frá kl. 16.30 - 17.00 við Ásbúðartröð 11 í H.f., allir velkomnir. Eiríkur Svanur Sigfússon lgf. verður á staðnum. Ekki verður hægt að skoða eignina fyrr en í opnu húsi. Góðar leigutekjur, sjá nánar á söluyfirliti.
117,9 fm 4ra til 5 herbergja íbúð á jarðhæð með aukaíbúð við Ásbúðartröð 11 í Hafnarfirði.
Allir uppgefnir fermetrar eru innan íbúðarinnar en búið er að loka af hluta hennar og gera aukaíbúð með sérinngang. Báðar íbúðirnar eru í leigu, leigutekjur eru kr. 245.000 og kr. 120.000, samtals kr. 365.000
Smeltu hér til að fá sölubækling stax.
Nánari lýsing: Forstofa með skápum. Geymsla/fatahengi innaf forstofu. Rúmgóður gangur. Eldhús með hvítri/viðarinnréttingu, borðkrókur, eldavél með viftu yfir, flísar á milli skápa. Stofa með útg. á rúmgóða verönd. Þvottahús undir stiga. Baðherbergi með sturtu, hvít innrétting, flísar á gólfi og veggjum. Tvö svefnherbergi eru í þessum íbúðarhluta ásamt einu gluggalausu herbergi sem núverandi eigendur nota sem þriðja svefnherbergið.
Aukaíbúð: Sérinngangur. Íbúðin skiptist í eldhús með innréttingu og stæði fyrir þvottavél - svefnherbergi - baðherbergi með sturtu.
Gólfefni íbúðarinnar er harðparket og flísar.
Hiti er í stétt fyrir framan hús.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð að hluta í gegnum tíðina, t.a.m.:
- Settur gólfhiti að hluta og nýjir ofnar
- Skólplagnir frá húsi út í götu
- Nýleg gólfefni
- Baðherbergi endurnýjað
- Búið að endurnýja innihurðir nema í geymslu
Ath. íbúðin er ekki í samræmi við teikningar.
Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 8623377 / eirikur@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is