138,7 fm einbýli/tvíbýli á tveimur hæðum við Vesturbraut 15 í Hafnarfirði. Húsinu hefur verið skipt upp í þrjár íbúðir í dag.
Eignin er skráð með tvö fastanúmer sem seljast saman og skiptist í íbúð 0101 sem er 77,3 fm og íbúð 0201 sem er 61,4 fm. Samtals 138,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Neðri hæð: Sérinngangur. Forstofa með góðu geymslu/skáparými. Gangur. Þrjú herbergi, tvö með fataskápum. Tvö baðherbergi eru á hæðinni með sturtuklefa. Þvottahús með útg. í sameign. Eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu og borðkrók borðstofa með útgang á verönd. Möguleiki á að skipta neðri hæð í tvær aðskildar íbúðir.
Efri hæð: Sameiginlegur inngangur. Búið er að skipta efri hæðinni í tvær tveggja herbergja íbúðir sem eru nú þegar í útleigu.
Lóðin er afgirt, tveir inngangar af lóð eru í húsið í dag.
Frábær staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is