Glæsileg 123,8 fm 4ra til 5 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og sér sólpall við Tjarnabakka 4 í Reykjanesbæ.
Allir uppgefnir fermetrar eru innan íbúðarinnar skv. Þjóðskrá Íslands, þ.m.t. geymsla.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax
Nánari lýsing: Forstofa með skápum. Sjónvarpshol sem mögulegt er að breyta í fjórða svefnherbergið. Eldhús og stofa í björtu alrými með útg. á rúmgóðan sér sólpall. Eldhúsið er með viðarinnréttingu, eyja með helluborð og háf yfir, ofn í vinnuhæð. Herbergisgangur. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, skápar í öllum. Baðherbergi með viðarinnréttingu, baðkar með sturtu yfir, veggsalerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum. Þvottahús er innan íbúðarinnar og geymsla innaf þvottahúsinu.
Gólfefni íbúðarinnar er parket og flísar.
Sér merkt bílastæði fylgir íbúðinni og hefðbundin sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is