Vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) við Meistaravelli 17 í Reykjavík.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 64,8 fm og geymsla á jarðhæð 4,1 fm, samtals 68,9 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing: Forstofa/hol með parketi á gólfi. Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útg. á svalir. Eldhús með hvítri innréttingu, ofni, viftu, helluborði og parketi á gólfi. ATH. möguleiki er á að uppþvottavél og ísskápur sem til staðar eru í íbúðinni fylgi með kaupunum. Eitt svefnherbergi með skápum og parketi á gólfi. Nýuppgert baðherbergi með hvítri innréttingu, veggsalerni, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni fyrir fjórar íbúðir.
Sér geymsla á jarðhæð ásamt hefðbundinni sameign með hjóla- og vagnageymslu.
Nánari upplýsingar veita Kristófer Fannar Guðmundsson lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í s. 661-4066 / kristofer@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Smelltu hér ef þú vilt skrá eignina þína á sölu eða fá verðmat frá sölumanni Ás fasteignasölu.
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is