Vel skipulögð 77,7 fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftufjölbýli við Eskivelli 5 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 70,3 fm og sér geymsla í kjallara 7,4 fm, samtals 77,7 fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Eignin er í útleigu og því mögulegt að yfirtaka gildandi leigusamning
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax
Nánari lýsing: Forstofa með skápum. Hol með parket á gólfi. Stofa og eldhús í björtu alrými með útg. út á rúmgóðar flísalagðar svalir. Eldhúsið er með viðarinnréttingu, flísum á milli skápa, ofn í vinnuhæð og helluborð m/viftu yfir. Svefnherbergi með skápum. Baðherbergi með viðarinnréttingu, baðkar m/sturtu yfir, veggsalerni og flísar á veggjum. Þvottahús með vaski og hillum.
Gólfefni íbúðarinnar er parket nema forstofa og votrými eru flísalögð.
Sér geymsla er í kjallara ásamt hefðbundinni sameign m/vagna- og hjólageymslu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, verslun, líkamsrækt, íþróttasvæði Hauka, sundlaug, góðar göngu- og hjólaleiðir o.fl.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is