EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN!
Falleg og björt 70,3 fm 2ja herbergja íbúð á 4. hæð með sér stæði í bílageymslu í lyftufjölbýli fyrir 50 ára og eldri við Skipalón 22 í Hafnarfirði.
Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 63,4 fm og sér geymsla í kjallara 6,9 fm, samtals 70,3 fm skv. Þjóðskrá íslands.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Þvottahús er innaf forstofu með vaskborði og hillum. Eitt svefnherbergi með skáp. Baðherbergi með sturtuklefa og veggsalerni. Stofa og eldhús í björtu alrými með útg. á svalir. Eldhúsið er með viðarinnréttingu, ofn í vinnuhæð, helluborð m/viftu yfir og innbyggð uppþvottavél.
Gólfefni íbúðarinnar er parket nema á baðherbergi og í þvottahúsi eru flísar.
Sér geymsla í kjallara ásamt sér stæði í bílageymslu.
Snyrtileg sameign m/hjóla- og vagnageymslu og samkomusal.
Frábær staðsetning í vinsælu húsi fyrir 50 ára og eldri þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veita Kristófer Fannar Guðmundsson lögfræðingur og nemi í lögg. námi í s. 661-4066 / kristofer@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is