Skeggjastaðir í Mosfellsdal. Einstakt 293,4 hektara landsvæði á fallegum stað í Mosfellsbæ.
Landið liggur norðan Þingvallarvegar. Það afmarkast af Leirvogsá til norðurs, Laxnesi og Skógarbringum til vesturs og suður og Selvangi/Selholti til austurs. Landinu fylgir veiðiréttur í einni bestu laxveiðiá landins, Leirvogsá. Landið hallar frá austri til vesturs og frá suðri til norðurs. Fallegt útsýni til sjávar og fjalla einkennir landið. Það er að mestu mólendi og sæmilega gróið en hluti þess eru grasflatir. Hér er um einstakt tækifæri fyrir fjársterka aðila að tryggja sér stórt landsvæði á höfuðborgarsvæðinu. Landið er í 3 km fjarlægð frá hestaleiguni Laxnesi og Gljúfrasteini.
Sjá loftmynd af ja.is hér
Sjá kort af ja.is hér
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is