Urriðaholtsstræti 30, 210 Garðabær
114.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
139 m2
114.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
96.260.000
Fasteignamat
96.300.000

Glæsileg 139,4 fm 5 herbergja íbúð á 4. hæð með fallegu útsýni við Urriðaholtsstræti 30 í Urriðaholti, Garðabæ. Sér stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. 
Allir birtir fermetrar eru innan íbúðarinnar, þ.m.t. geymsla. 

Aukin lofthæð - Útsýni og gluggar í allar áttir - Suðvestur svalir - Rafhleðslustöð í einkastæði í bílageymslu

Nánari lýsing:
 Forstofa með góðum forstofuskáp, gangur/hol innaf. Bjart alrými sem saman stendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Eldhúsið er rúmgott með góðu vinnu- og skápaplássi, granítsteinn á borðum frá S. Helgasyni og innfellt spanhelluborð í eyjunni, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Rúmgóð borðstofa en þaðan er útgengt út á svalir íbúðarinnar sem snúa vel gagnvart sólu (suðvestur). Sjónvarpshol, þrjú rúmgóð barnaherbergi, hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Flísalagt baðherbergi með "walk in" sturtu og fallegri innréttingu með marmara frá S.Helgasyni. Þvottaherbergi innaf baðherbergi með glugga, geymsla innan eignar.
Blastæði í lokaðri bílageymslu og búið er að setja upp rafhleðslustöð við stæðið.

- 2020 var settur granítsteinn frá S. helgasyni á eldhúsinnréttingu og á eyju með innfelldu spanhelluborði, stærri vask og nýjum blöndunartækjum skipt út fyrir upprunalega vaskinn. 
Marmari frá S. Helgasyni settur á baðherbergi - vaski og blöndunartækjum skipt út. 
- 2021 var mött glerhurð sett til að skilja að þvottahús og baðherbergi. 
- 2022 voru öll 4 svefnherbergin máluð. 

Snyrtilegt fjölbýlishús sem stendur afar vel og útsýnið nýtur sín, húsið er einangrað og klætt að utan. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / [email protected]

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.