249,4 fm parhús á tveimur hæðum við Lindarberg 34 í Setberginu, Hafnarfirði. Frábær staðsetning innst í botnlangagötu og fallegt útsýni.
Eignin skiptist þannig að efri hæðin er 100,3 fm, neðri hæðin 123,9 fm og bílskúrinn 25,2 fm, samtals 249,4 fm skv. Fasteignaskrá.
Efri hæð: Forstofa með fatahengi. Gestasalerni. Eldhús, borðstofa og stofa í björtu alrými með fallegu útsýni og mikilli lofthæð, útg. á stórar svalir. Eldhúsið er með viðarinnréttingu, ofn í vinnuhæð, stæði fyrir uppþvottavél, helluborð með viftu yfir. Eitt svefnherbergi er á hæðinni (forstofuherbergi). Stigi niður á neðri hæð er úr alrými.
Neðri hæð: Rúmgott sjónvarpshol og rými með góðu skápaplássi. Baðherbergi með stóru hornbaðkari og sturtuklefa, veggsalerni, viðarinnrétting. Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni, útg. á lóð úr hjónaherberginu. Þvottahús og geymsla með opnanlegum glugga og útg. á lóð, innrétting er í þvottahúsinu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Gólfefni hússins er parket og flísar.
Bílskúr er með hita, rafmagni og vatni.
Lóðin: Glæsilega frágengin með hellulögðu bílaplani, grasveröndum með fallegum gróðri og sólpalli með heitum potti. Steyptir og timbur skjólveggir.
Frábær staðsetning á besta stað í Setberginu, stutt í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is