Ás fasteignasala kynnir glæsilega eign við Arnarsmári 38 í Kópavogi, húsið byggt 2020. Eignin er fimm herbergja á jarðhæð með sér stæði í bílageymslu, tvö baðherberbergi með sturtu svo og er lyfta í húsinu. Öll rými eru rúmgóð þ.m.t. sér geymslan í kjallara. Eignin er klædd að utan því lítið viðhald að utan og allur frágangur til fyrirmyndar bæði að utan og innan. Frábær staðsetning, miðsvæðis á höfðuborgarsvæðinu, örstutt í margskonar þjónustu en samt er rólegt umhverfi við húsið.
Stærð eignar er skráð hjá FMR 168,3 fm sem skiptist þannig að íbúðin er 152,2 fm og sér geymsla í kjallara 16,2 fm. Forstofa með skápum og flísum á gólfi. Hol/gangur með h.parket, fjögur herbergi með h.parket á gólfi, skápar í tveim en innaf hjónaherberginu er fataherbergi og baðherbergi sem er með flísum á gólfi og á vegg að hluta, sturta, innrétting. Borð- og setustofa með h.parket á gólfi, útg út á verönd í norðurátt úr borðstofunni en úr setustofunni er útg. út á stóra verönd í suðurátt. Eldhúsið er opið á milli setu- og borðstofu, h.parket á gólfi, eyja, 90cam spanhelluborð, háfur/vifta, stæði f. tvöfaldan ísskáp og stæði fyrir uppþvottavél. Baðerbergi með flísum á gólfi á vegg að hluta, sturta, innrétting, innaf baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu. Sér geymsla í kjallara, sér stæði í bílageymslu, hjóla- og vagnageymsla. Sérlega falleg eign.
Allar nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í síma 862-3377 / [email protected] og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is