Falleg 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með svalir til suðurs sem er búið að endurnýja töluvert. Baðherbergið var tekið í geng síðasta sumar, búið er að klæða húsið að utan að hluta og einnig skipta um glugga og gler á framhlið hússins.
Eignin er 109 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin sjálf er 103,5 fm og sér geymsla í kjallara 5,5 fm skv. Þjóðskrá Íslands
Smelltu hér til að fá sölubækling sendan strax
Nánari lýsing: Forstofa með fataherbergi. Stofa og borðstofa með útg. á suður svalir. Eldhúsið er með góðri innréttingu, helluborð, vifta, flísar á milli skápa. Þvottahús innaf eldhúsi, gluggi, lítið búr/geymsla innaf þvottahúsi. Herbergisgangur með skápum, þrjú svefnherbergi, skápar í hjónaherberginu. Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, innrétting, baðkar.
Sér geymsla í kjallara. Lóð er ræktuð. Gólfefni eru p.parket, parket og flísar.
Hefðbundin sameign m/hjóla - og vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar hjá Eiríki Svani Sigfússyni löggiltum fasteignasala í síma 862-3377.
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki, stofnað árið 1988 og er staðsett við Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði. Hjá Ás fasteignasölu starfa 5 starfsmenn með um 100 ára samanlagða reynslu af fasteignamarkaðinum, þar af 4 löggiltir fasteignasalar og 2 löggiltir leigumiðlarar.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.as.is