Eitt stærsta húsið á einni hæð í Vogum á Vatnsleysuströnd. Eignin er alls 291,5 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin 231,5 fm og bílskúrinn 60,5 fm að stærð.
Forstofa með fatahengi. Rúmgott sjónvarpshol. Gestasnyrting með flísum á gólfi, sturta. Herbergisgangur, fjögur svefnherbergi, fataherbergi (einnig er möguleiki að setja snyrtingu, lagnir til staðar), innaf hjónaherbergi. Baðherbergi með wc í vegg, handklæðaofn, baðkar, sturta, flísar á vegg. Þvottahús með skápum. Eldhús með fallegri innréttingu, helluborð, ofn í vinnuhæð, háfur, stæði f. uppþvottavél. Stór stofa með stórfenglegum arinn, sjá myndir, bar, útg, út á verönd. Geymsla innaf bílskúr, bílskúr með hita, rafm., vatni, hurðaopnara, milliloft. Geymsla við verönd. Gólfefni í húsinu eru granítflísar og parket. Þetta er einstakt tækifæri að kaupa stórt hús í útjaðri höfuðborgarinnar. Húsið var mikið endurnýjað 2001 og 2002, flest gólfefni 2009. Óskað er eftir tilboði í eignina.
Smelltu hér til að fá sölubækling sendan strax
Allar nánari upplýsingar hjá Eiríki Svani Sigfússyni löggiltum fasteignasala í síma 862-3377.
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki, stofnað árið 1988 og er staðsett við Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði. Hjá Ás fasteignasölu starfa 5 starfsmenn með um 100 ára samanlagða reynslu af fasteignamarkaðinum, þar af 4 löggiltir fasteignasalar og 2 löggiltir leigumiðlarar.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.as.is