"" SÉRINNGANGUR "" Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Lækjargötu 28 í Hafnarfirði.
Eignin er skráð 85,4 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 77,3 fm og sér geymsla á jarðhæð 8,1 fm, síðan er að auki ca. 11 fm nýleg sólstofa.
Nánari lýsing: Forstofa með skáp, flísar á gólfi. Innaf forstofu er þvottahús með flísum á gólfi, gluggi. Hol með parket á gólfi. Tvö svefnherbergi með parket á gólfi, skápar í báðum. Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, baðkar, innrétting. Stofan er með parket á gólfi, útg. á hellulagða verönd/sólstofu. Eldhúsið er opið í stofuna, parket á gólfi, mósaíkflísar á vegg á milli skápa, háfur, helluborð, stæði f. uppþvottavél.
Sér geymsla í sameign, hjóla- og vagnageymsla, virkilega fín eign.
Smelltu hér til að fá sölubækling sendan strax
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki staðsett að Fjarðargötu 17 í Hafnarfirði, stofnað árið 1988. Hjá Ás fasteignasölu starfa 5 starfsmenn með yfir 100 ára samanlagða reynslu af fasteignamarkaðinum, þar af 4 löggiltir fasteignasalar og 2 löggiltir leigumiðlarar.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.as.is