Reykjavíkurvegur 42, 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í snyrtilegu þríbýlishúsi með sérinngangi, íbúðin er skráð 113,6 fm að stærð samkvæmt fmr.Nánari lýsing: Forstofa, stigi sem tengir saman forstofuna og hæðina sjálfa, eldhúsið er rúmgott með góðu vinnu- og skápaplássi,
bjart alrými með góðum gluggum, herbergi innaf stofunni og útgengt er út á svalir út úr því herbergi.
Flísalagt baðherbergi, sturtu aðstaða í baðkari, á herbergisgangi eru síðan tvö svefnherbergi, rúmgott hjónaherbergi og eitt minna,
sér geymsla í sameign eignarinnar ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is